14.1.04

Nýtt ár

Maður er rétt hættur að óska fólki gleðilegs árs og hálfur mánuður er liðinn af 2004. Skólinn byrjaður, síðasta önnin í bili. Vill einhver ráða mig í vinnu? Klambraði saman heimasíðu http://skyjumofar.blogspot.com. Einhver útivistarklúbbur sem ég er með ásamt kennara í Langholtsskóla. Maður er svona að prófa sig áfram í gestabókum, kommentakerfum, spjalli og myndasíðum. Ég er að nema ný lönd og fyrstu skrefin er ávallt erfiðust í hverju því sem maður tekur sér fyrir hendur. Með það að leiðarljósi þá held ég alltaf áfram, þetta getur aldrei versnað mikið - þetta það hvað sem það er, bara halda áfram, ganga veginn, hvað sem bjátar á, hvað sem tautar og raular.

|